Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

978. fundur 31. júlí 2024 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Brekkugata 9 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024060202Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. júní 2024 þar sem Þórir Guðmundsson f.h. Gunnars Magnúsar Arnþórssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 9 við Brekkugötu í Hrísey. Innkomin gögn eftir Gunnar Magnús Arnþórsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Hjalteyrargata 20 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024051106Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 21. maí 2024 þar sem Kári Magnússon f.h. Slippsins Akureyri ehf. sækir um breytingar innanhúss á húsi nr. 20 við Hjalteyrargötu. Innkomin uppfærð gögn 26. júlí 2024 eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.