Erindi dagsett 11. desember 2012 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Sjöstjörnunnar ehf., kt. 501298-5069, og Þingvangs ehf., kt. 671106-0750, sækir um byggingarleyfi v/ stækkunar og breytinga við hús nr. 5 við Skipagötu. Meðfylgjandi eru gátlisti og teikningar.
Einnig er sótt um undanþágu í samræmi við grein 17.1.2., lið 1 í byggingarreglugerð 112/2012:
1. Gr. 6.4.12. Í byggingum sem eru 3 hæðir eða hærri skal vera lyfta.
2. Gr. 6.1.3. og Gr. 6.7.2. Algild hönnun.
3. Gr. 6.7.2. og Gr. 6.4.8. Undanþága um breidd stigapalla.
Innkomið samþykki nágranna 9. apríl 2013.