Erindi dagsett 18. september 2012 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Straumrásar ehf., kt. 651185-0849, sækir um leyfi fyrir breytingum á 2. hæð ásamt nýjum gluggum og svölum að Furuvöllum 3. Óskað er eftir að erindið verði afgreitt samkvæmt eldri byggingarreglugerð þar sem húsið er hannað árið 1966.
Undanþágubeiðni tekur til kafla 6 um algilda hönnun og greina 4.3.4, 4.3.5, 4.3.9 og 4.6 í kafla 4. Meðfylgjandi eru teikningar og gátlisti eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar teikningar 11. október 2012.
Skipulagsstjóri frestar afgreiðslu með vísan í athugasemdir á fylgiblaði.