Erindi dagsett 19. júní 2012 þar sem Tryggvi Tryggvason f.h. Fjölnis ehf., kt. 530289-2069, sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingu á lóð nr. 27 við Tjarnartún. Sótt er um undanþágu frá gildandi byggingarreglugerð.
1. Gr. 6.1.3. Kröfur um algilda hönnun, lið h. varðandi hönnun umferðaleiða innan bygginga sjá kafla 6.4.
2. Gr. 6.7.2. Algild hönnun.
3. Gr. 6.7.8. Íbúðaherbergi varðandi kröfu um eitt 14m2 herbergi.
4. Gr.8.5.2. Gler
5. Gr.13.2.1. til 13.3.3. Varðandi útreikning heildarleiðnitaps, heildarorkuþarfar og hámarks U-gilda byggingarhluta.
Einnig er sótt um takmarkað byggingarleyfi. Meðfylgjandi eru teikningar, gátlisti og umsókn um að vera hönnunarstjóri eftir Tryggva Tryggvason.