Munkaþverárstræti 44 - umsókn um breytta lóðarstærð

Málsnúmer 2012050092

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 409. fundur - 15.08.2012

Erindi dagsett 13. ágúst 2012 þar sem Kristín Kristjánsdóttir og Jónas Jónasson sækja um lóðarstækkun fyrir lóð nr. 44 við Munkaþverárstræti í samræmi við samkomulag sem getið er um í fundargerðarbókum byggingarnefndar Akureyrar 2. apríl 1943 og 31. maí 1943 og eins og fram kemur í meðfylgjandi lóðarblaði.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.