Jaðarsíða 6-12 - umsókn um skil á lóð eða framlengingu á byggingarfresti

Málsnúmer 2011030121

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 111. fundur - 30.03.2011

Erindi dagsett 11. mars 2011 þar sem Jónas Ingi Ketilsson f.h. Hagviðar ehf., kt. 450808-0750, óskar eftir endurskoðun Akureyrarbæjar á afgreiðslu fyrri umsóknar um að skila inn lóð nr. 6-12 við Jaðarsíðu eða að frestur til framkvæmda verði framlengdur. Nánari skýringar í meðfylgjandi bréfi.

Skipulagsnefnd getur ekki orðið við erindinu um að lóðinni verði skilað þar sem framkvæmdir eru hafnar. Veittur er framkvæmdafrestur til eins árs eða til 1. apríl 2012.