Bæjarráð

3861. fundur 12. september 2024 kl. 08:15 - 10:00 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir varaformaður
  • Hlynur Jóhannsson
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Jón Þór Kristjánsson forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá

1.Ársreikningur Akureyrarbæjar fyrir árið 2024

Málsnúmer 2024090414Vakta málsnúmer

Lagt fram árshlutauppgjör janúar-júní 2024.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið. Þá sátu bæjarfulltrúarnir Halla Björk Reynisdóttir, Lára Halldóra Eiríksdóttir og Gunnar Már Gunnarsson undir þessum lið í gegnum fjarfundarbúnað.
Bæjarráð vísar árshlutauppgjöri til umræðu í bæjarstjórn.

2.Erindi vegna laxeldis á Tröllaskaga

Málsnúmer 2024090303Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 2. september 2024 frá Vigdísi Häsler fyrir hönd Kleifa fiskeldis ehf. þar sem kynnt eru áform fyrirtækisins um uppbyggingu á laxeldi í Ólafsfirði, Siglufirði, Héðinsfirði og Eyjafirði.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð telur ekki forsendu til að taka afstöðu til erindisins á þessu stigi.


Ásrún Ýr Gestsdóttir V-lista óskar bókað:

Ég leggst alfarið gegn eldi í Eyjafirði og vísa í bókun bæjarstjórnar frá 19. maí 2020:

,,Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkir að leggja til við sjávarútvegsráðherra að Eyjafjörður verði friðaður fyrir sjókvíaeldi líkt og gert hefur verið með Húnaflóa, Skagafjörð, Skjálfanda, Þistilfjörð, Bakkaflóa, Vopnafjörð og Héraðsflóa. Bæjarstjórn telur að með þeirri ákvörðun verði meiri hagsmunum ekki fórnað fyrir minni en hvetur til uppbyggingar á fiskeldi á landi."

3.Viðverustjórnun

Málsnúmer 2024090423Vakta málsnúmer

Umfjöllun um fræðslu og faglegan stuðning við stjórnendur vegna viðverustjórnunar.

Birna Eyjólfsdóttir forstöðumaður mannauðsmála og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sátu fundinn undir þessum lið.

4.Samstarf vegna RECET

Málsnúmer 2024090383Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 4. september 2024 frá Skúla Gunnari Árnasyni fyrir hönd Eims og Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur fyrir hönd SSNE vegna þátttöku í RECET verkefninu sem snýst um að efla getu sveitarfélaga til að takast á við orkuskipti í dreifðum byggðum. Óskað er eftir staðfestingu Akureyrarbæjar á því hvort vilji sé fyrir hendi til þátttöku í vinnu við gerð aðgerðaáætlunar í orkuskiptum fyrir hvert og eitt sveitarfélag.
Akureyrarbær staðfestir þátttöku í verkefninu.

5.SSNE - haustþing 2024

Málsnúmer 2024090325Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 4. september 2024 þar sem boðað er til aukaþings Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra, SSNE, sem haldið verður föstudaginn 4. október næstkomandi.

Fundi slitið - kl. 10:00.