Málsnúmer 2015110167Vakta málsnúmer
Liður 1 í fundargerð stjórnar Akureyrarstofu dagsettri 18. desember 2018:
Ragnar Hólm Ragnarsson verkefnastjóri kynningarmála lagði fram upplýsingastefnu Akureyrarbæjar til samþykktar.
Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlögð drög að upplýsingastefnu að viðbættum þeim athugasemdum sem fram komu á fundinum og vísar henni til endanlegrar samþykktar hjá bæjarráði.
Í upphafi fundar leitaði formaður afbrigða til að taka af dagskrá mál sem var 8. liður í útsendri dagskrá, 2018110171 Jafnréttisstefna - skipan þróunarleiðtoga. Jafnframt að tekið yrði á dagskrá mál 2019010053 Viðauki vegna heimilis fyrir börn með verulegar þjónustuþarfir og mál 2018120187 Samningur ríkissjóðs og Akureyrarbæjar um uppgjör lífeyrisskuldbindinga. Var það samþykkt samhljóða.