Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

997. fundur 12. desember 2024 kl. 13:00 - 13:45 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Gránufélagsgata 22 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2024100696Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. október 2024 þar sem Kári Magnússon f.h. Stefáns Ármanns Hjaltasonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir nýbyggingu íbúðarhúss og endurbyggingu á núverandi húsi á lóð nr. 22 við Gránufélagsgötu. Innkomin ný gögn dagsett 10. desember 2024 eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Gránufélagsgata 22 - umsókn um byggingarleyfi - niðurrif

Málsnúmer 2024081709Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. ágúst 2024 þar sem Stefán Ármann Hjaltason sækir um niðurrif á smiðju á lóð nr. 22 við Gránufélagsgötu.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Hríseyjargata 22 - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2024111482Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. nóvember 2024 þar sem Júlía Þrastardóttir sækir um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám innan lóðar nr. 22 við Hríseyjargötu.
Byggingarfulltrúi óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

4.Hörpuland 12 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024040281Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. desember 2024 þar sem Sigurður Sigurðsson f.h. SS Byggis ehf óskar eftir að endurvekja byggingarleyfi sem var samþykkt á afgreiðslufundi 18. apríl 2024.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Jaðar - Golfklúbbur Akureyrar - æfingarhús - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023110697Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. nóvember 2023 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Golfklúbbs Akureyrar, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir geymslu, æfingarhús og verslun að Jaðri. Innkomnir uppfærðir uppdrættir dagsettir 10. desember 2024 eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

6.Hrísmói 6 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2024120277Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. desember 2024 þar sem Ingvar Jónsson f.h. Ævars Geirs Jónassonar og Sveinmars Rafns Stefánssonar, sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir parhúsi á lóð nr. 6-8 við Hrísmóa. Innkomin gögn eftir Ingvar Jónsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

7.Týsnes 4 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023061190Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. desember 2024 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd T4 ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum á þegar samþykktum aðaluppdráttum af atvinnuhúsnæði á lóð nr. 4 við Týsnes. Innkomnar teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

8.Týsnes 8 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022031359Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. janúar 2024 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Stafnsins fasteigna ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir hús á lóð nr. 8 við Týsnes. Meðfylgjandi eru uppfærðar teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Eignaskiptayfirlýsing skal liggja fyrir áður en öryggisúttekt fer fram.

Fundi slitið - kl. 13:45.