Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

996. fundur 05. desember 2024 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Hulduholt 5-11 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2024111194Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. nóvember 2024 þar sem Falk Kruger f.h. ZZ sport ehf sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir tveggja hæða raðhúsi á lóð nr. 5-11 við Hulduholt. Innkomin gögn eftir Falk Kruger.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Gleráreyrar 1, rými 1-3, mathöll - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024010736Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. janúar 2024 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir mathöll milli rýma 1, 2 og 3 í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Meðfylgjandi eru teikningar dagsettar 20. nóvember 2024 eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Kjarnagata 53 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021060323Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. nóvember 2024 þar sem Haraldur S. Árnason fh. Kjarnagötu 53 byggingaverks ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum á þegar samþykktum aðaluppdráttum af fjölbýlishúsi nr 53. við Kjarnagötu. Innkomin gögn eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Norðurgata 3 og 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2024070876Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. desember 2024 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Trésmiðju Ásgríms ehf sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum á þegar samþykktum aðaluppdráttum fyrir tvö fjölbýlishús á lóð nr. 3 og 5 við Norðurgötu. Innkomin uppfærð gögn eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.