Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

993. fundur 15. nóvember 2024 kl. 10:30 - 11:15 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
  • Hjálmar Árnason fundarritari
Fundargerð ritaði: Katrín Rós Ívarsdóttir Verkefnastjóri fasteignaskráningar
Dagskrá

1.Norðurgata 3-5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2024070876Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. júlí 2024 þar sem Haraldur S. Árnason fh. Trésmiðju Ásgríms ehf sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir tveimur fjölbýlishúsum á lóð nr. 3 við Norðurgötu. Innkomin gögn dagsett 13. nóvember 2024 eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Strandgata 25 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024040121Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. apríl 2024 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Unnar Harðardóttur sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir svölum ásamt breytingum utanhúss og innan á húsi nr. 25 við Strandgötu. Innkomin gögn dagsett 8. nóvember 2024 frá Kára Magnússyni.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 11:15.