Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

986. fundur 26. september 2024 kl. 13:00 - 13:15 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Stekkjargerði 16 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024010534Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. janúar 2024 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Elmars Dan Sigþórssonar sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum á innra skipulagi og útliti húss. Einnig er sótt um að fá að byggja bílgeymslu, bílskýli og lóðarveggi á lóð nr. 16 við Stekkjargerði. Innkomnar teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Víðivellir 4 - umsókn um bílastæði og
úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2024091246Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. september 2024 þar sem Gunnhildur Anna Sævarsdóttir sækir um stækkun á bílastæði og úrtak í kantstein við hús nr. 4 við Víðivelli.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.

3.Dvergaholt 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2024070902Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. september 2024 þar sem Fanney Hauksdóttir sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 1 við Dvergaholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.


Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:15.