Víðivellir 4 - umsókn um bílastæði og
úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2024091246

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 986. fundur - 26.09.2024

Erindi dagsett 23. september 2024 þar sem Gunnhildur Anna Sævarsdóttir sækir um stækkun á bílastæði og úrtak í kantstein við hús nr. 4 við Víðivelli.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.