Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

975. fundur 11. júlí 2024 kl. 13:00 - 14:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Steinmar H. Rögnvaldsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Sjafnargata 1A - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Minni háttar breyting.

Málsnúmer 2023030460Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 9. mars 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Sjafnargötu ehf sækir um minni háttar breytingar á húsi nr. 1A við Sjafnargötu. Innkomin ný gögn 8. júlí 2024 eftir Ingólf F. Guðmundsson og Ragnar F. Guðmundsson hjá Kollgátu.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Norðurgata 3-5-7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2024070876Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. júlí 2024 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Trésmiðju Ásgríms ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir tveimur fjölbýlishúsum á lóð nr. 3-5-7 við Norðurgötu. Innkomin gögn eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Hrísmói 10-12 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2024070769Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. júlí 2024 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson f.h. Jóhanns Helga Hannessonar og Hannesar Indriða Kristjánssonar, sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir parhúsi á lóð nr. 10-12 við Hrísmóa. Innkomin gögn eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

4.Kjarnagata 35 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024041343Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. apríl 2024 þar sem Björn Vigfússon sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir svalalokun á fjölbýlishúsi nr. 35 við Kjarnagötu. Gögn unnin af Vigfúsi Björnssyni dags. 03.06.2024 hafa verið lögð inn.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 14:30.