Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

971. fundur 13. júní 2024 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Naustatangi 1 - umsókn um byggingarleyfi - niðurrif

Málsnúmer 2024051814Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 31. maí 2024 þar sem Skútaberg ehf sækir um niðurrif á sementssílóum við Naustatanga 1.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Bjarkarlundur 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2024051455Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. maí 2024 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir f.h. Áskels Viðars Bjarnasonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 2 við Bjarkarlund. Innkomin gögn eftir Önnu Margréti Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Þingvallastræti 31 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024010742Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 12. janúar 2024 þar sem Ívar Hauksson fyrir hönd G.M.Í. ehf, sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir nýbyggingu á lóð nr. 31 við Þingvallastræti. Óskað er eftir að byggja vinnustofu. Innkomin ný gögn 8. júní 2024 eftir Ívar Hauksson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Skilyrt er að gerðar verði hæðarmælingar á nánasta umhverfi lóðarinnar áður en framkvæmdir hefjast og að framkvæmdaraðili verði að haga grundun hússins á þann veg að það hafi ekki áhrif á aðliggjandi lóðir.

4.Oddeyrarbót 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023090734Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. nóvember 2023 þar sem Jóhann Einar Jónsson fyrir hönd Hvalaskoðunar Akureyrar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir verslunar- og þjónustuhúsnæði á tveimur hæðum á lóð nr. 2 við Oddeyrarbót. Innkomnar uppfærðar teikningar 12. júní 2024 eftir Jóhann Einar Jónsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.