Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

733. fundur 26. júlí 2019 kl. 08:00 - 08:15 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Björn Jóhannsson staðgengill byggingarfulltrúa
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Hafnarstræti 82 - breytingar á 1. hæð

Málsnúmer 2017060119Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. júlí 2019 þar sem Gunnar Magnússon sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á 1. hæð Hafnarstrætis 82. Fyrirhugað er að opna veitingaaðstöðu. Meðfylgjandi er teikning eftir Þröst Sigurðsson.
Staðgengill byggingafulltrúa óskar umsagnar skipulagsráðs um erindið.

2.Kjarnagata 51 - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2018050066Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. febrúar 2019 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd SS Byggis ehf., kt. 620687-2519, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af bílakjallara á lóð nr. 51 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason. Innkomnar nýjar teikningar 17. júlí 2019.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.

3.Jaðarsíða 5 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2019040293Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. apríl 2019 þar sem Anton Örn Brynjarsson fyrir hönd Finns Aðalbjörnssonar sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingunni nr. 5 við Jaðarsíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 19. júlí 2019.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.

4.Hrísalundur 1B - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2019070489Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. júlí 2019 þar sem Þröstur Sigurðsson fyrir hönd Hjálpræðishersins á Íslandi, kt. 620169-1539, sækir um opnun í millivegg á milli rýma 0102 og 0103 í Hrísalundi 1B. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þröst Sigurðsson.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 08:15.