Jaðarsíða 5 - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2019040293

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 719. fundur - 17.04.2019

Erindi dagsett 15. apríl 2019 þar sem Anton Örn Brynjarsson fyrir hönd Finns Aðalbjörnssonar sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingunni nr. 5 við Jaðarsíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Anton Örn Brynjarsson. Sótt erum graftrarleyfi á grundvelli meðfylgjandi gagna.
Byggingarfulltrú samþykkir heimild til jarðvegsskipta en frestar erindinu að öðru leyti með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 730. fundur - 05.07.2019

Erindi dagsett 26. júní 2019 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Finns Aðalbjörnssonar sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingunni nr. 5 við Jaðarsíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 733. fundur - 26.07.2019

Erindi dagsett 15. apríl 2019 þar sem Anton Örn Brynjarsson fyrir hönd Finns Aðalbjörnssonar sækir um byggingarleyfi fyrir nýbyggingunni nr. 5 við Jaðarsíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 19. júlí 2019.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.