Velferðarráð

1354. fundur 24. ágúst 2022 kl. 14:00 - 16:55 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir formaður
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson
  • Alfa Dröfn Jóhannsdóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Ísak Már Jóhannesson áheyrnarfulltrúi
  • Málfríður Stefanía Þórðardóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Velferðarsvið - kynning á starfsemi fyrir velferðarráð 2022

Málsnúmer 2022080456Vakta málsnúmer

Velferðarráð fór í heimsókn á Plastiðjuna Bjarg - Iðjulund kl. 14:00.

Svanborg Bobba Guðgeirsdóttir forstöðumaður tók á móti ráðinu, sýndi vinnustaðinn og sagði frá starfseminni.

2.Velferðarsvið - kynning á starfsemi fyrir velferðarráð 2022

Málsnúmer 2022080456Vakta málsnúmer

Félagsþjónusta - Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður kynnti verkefni félagsþjónustunnar.

3.Fjárhagsaðstoð 2022

Málsnúmer 2022041999Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð fyrstu 6 mánuði ársins.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið.

4.Velferðarsvið - kynning á starfsemi fyrir velferðarráð 2022

Málsnúmer 2022080456Vakta málsnúmer

Barnaverd - Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður kynnti verkefni barnaverndar á velferðarsviði.

5.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2022

Málsnúmer 2022041998Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir 6 mánaða rekstur velferðarsviðs.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu sat fundinn undir þessum lið.

6.Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2023

Málsnúmer 2022081006Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að forsendum fjárhagsáætlunar Akureyrarbæjar fyrir árið 2023.

Fundi slitið - kl. 16:55.