Velferðarráð

1353. fundur 22. júní 2022 kl. 14:30 - 17:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir formaður
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson
  • Tanja Hlín Þorgeirsdóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Ísak Már Jóhannesson áheyrnarfulltrúi
  • Málfríður Stefanía Þórðardóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Dagskrá
Velferðarráð sem kjörið var á fundi bæjarstjórnar 7. júní sl. er skipað eftirtöldum:
Aðalmenn:
Hulda Elma Eysteinsdóttir L-lista
Lára Halldóra Eiríksdóttir D-lista
Karl Liljendal Hólmgeirsson M-lista
Alfa Dröfn Jóhannsdóttir B-lista
Fjarlægja fundarmann
Hermann Ingi Arason V-lista
Ísak Már Jóhannesson áheyrnarfulltrúi S-lista
Málfríður Stefanía Þórðardóttir áheyrnarfulltrúi F-lista

Varamenn:
Anna Fanney Stefánsdóttir L-lista
Sólveig María Árnadóttir S-lista
Sigrún Elva Briem M-lista
Tanja Hlín Þorgeirsdóttir B-lista
Snæbjörn Ómar Guðjónsson V-lista
Kolfinna María Níelsdóttir áheyrnarfulltrúi S-lista
Tinna Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi F-lista

Formaður bauð nýtt velferðarráð velkomið til starfa.

Tanja Hlín Þorgeirsdóttir B-lista sat fundinn í forföllum Ölfu Drafnar Jóhannsdóttur.

1.Stjórnsýslubreytingar 2021 - samþykktir ráða og kynningar

Málsnúmer 2022010176Vakta málsnúmer

Farið yfir samþykkt fyrir velferðarráð sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. desember 2021.

2.Þróunarleiðtogar skv. mannréttindastefnu Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2022060687Vakta málsnúmer

Lögð fram mannréttindastefna Akureyrarbæjar en óskað er eftir að ráðin skipi þróunarleiðtoga skv. stefnunni.
Velferðarráð samþykkir Huldu Elmu Eysteinsdóttur formann velferðarráðs sem þróunarleiðtoga velferðarráðs fyrir mannréttindastefnu Akureyrarbæjar.

3.Velferðarsvið - kynningar á starfsemi

Málsnúmer 2022050722Vakta málsnúmer

Stutt kynning á velferðarsviði.

4.Starfsáætlanir ráða 2022

Málsnúmer 2021080829Vakta málsnúmer

Starfsáætlun velferðarsviðs lögð fram til kynningar og umræðu.
Verkefni nr. 2 í starfsáætlun verlferðarráðs um byggingu þjónustukjarna í Nonnahaga.

Velferðarráð felur sviðsstjóra að greina þörf fyrir húsnæði í málaflokki fatlaðs fólks með það að markmiði að flýta uppbyggingu í Nonnahaga samhliða framkvæmdum í Hafnarstræti.

Verkefni nr. 15 í starfsáætlun verlferðarráðs um kannanir á þjónustu.

Velferðarráð óskar eftir því að framkvæmd verði könnun sem miðar að nýtingu og eftirspurn á íþrótta- og tómstundastarfi fyrir fötluð börn með það að markmiði að auka framboð í samræmi við eftirspurn.


Enn fremur óskar velferðarráð eftir því að í haust verði hafin vinna við kortlagningu á sárafátækt á Akureyri og í framhaldinu verði lögð fram áætlun um það hvernig megi styðja við fólk út úr þeim aðstæðum. Sviðsstjóra er falið koma því verkefni inn í starfsáætlun velferðarsviðs.

5.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2022

Málsnúmer 2022041998Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit velferðarsviðs eftir fyrstu fjóra mánuði ársins.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu velferðarsviðs og Anna Marit Nielsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu velferðarsviðs sátu fundinn undir þessum lið.

6.Fjárhagsaðstoð 2022

Málsnúmer 2022041999Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir veitta fjárhagsaðstoð eftir fyrstu fjóra mánuði ársins.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu velferðarsviðs og Anna Marit Nielsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu velferðarsviðs sátu fundinn undir þessum lið.

7.Fjárhagserindi 2022 - áfrýjanir

Málsnúmer 2022011556Vakta málsnúmer

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður kynnti áfrýjanir í fjárhagsaðstoð. Afgreiðsla málanna er trúnaðarmál og færð í trúnaðarmálabók velferðarráðs.
Fjárhagserindi og afgreiðsla þeirra eru færð í trúnaðarmálabók velferðarráðs.

Anna Marit Nielsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.

8.Fjölsmiðjan á Akureyri - beiðni um endurnýjun rekstrarsamnings 2022

Málsnúmer 2022051712Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Erlingi Kristjánssyni forstöðumanni Fjölsmiðjunnar á Akureyri dags. 31. maí 2022 þar sem óskað er eftir endurnýjun á rekstrarsamnngi.
Velferðarráð samþykkir að endurnýja rekstrarsamning til tveggja ára við Fjölsmiðjuna á Akureyri og felur sviðsstjóra að vinna málið.

9.Fundaáætlun velferðarráðs

Málsnúmer 2015060008Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fundaáætlun velferðarráðs frá ágúst til desember 2022.
Velferðarráð samþykkir framlagða fundarárætlun.

Fundi slitið - kl. 17:00.