Erindi frá stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga um loðnubrest

Málsnúmer 2024101011

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3867. fundur - 31.10.2024

Erindi dagsett 25. október 2024 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um bókun frá stjórnarfundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 22. október þar sem lýst er yfir þungum áhyggjum af áhrifum mögulegs loðnubrests á íslenskt efnahagslíf.
Bæjarráð tekur undir bókun Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 22. október sl.