Hafnarstræti 75 - umsókn um byggingarleyfi - niðurrif

Málsnúmer 2024100357

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 990. fundur - 25.10.2024

Erindi dagsett 9. október 2024 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Hótels Akureyrar ehf. sækir um niðurrif á húsi nr. 75 við Hafnarstræti.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. mannvirkjalaga.