Hafnarstræti 73 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2024091577

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 987. fundur - 04.10.2024

Erindi dagsett 30. september 2024 þar sem Haraldur Sigmar Árnason f.h. Hótel Akureyri ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir stækkun á hóteli á lóð nr. 73 við Hafnarstræti og fimm hæða hótel á lóð nr. 75 við Hafnarstræti. Innkomin gögn eftir Harald Sigmar Árnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 988. fundur - 09.10.2024

Erindi dagsett 30. september 2024 þar sem Haraldur S. Árnason fh. Hótel Akureyri sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir stækkun á hóteli á lóð nr. 73 við Hafnarstræti og fimm hæða hótel á lóð nr. 75 við Hafnarstræti. Innkomin ný gögn dagsett 8. október 2024 eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.