Oddagata 7 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 1

Málsnúmer 2024090334

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 994. fundur - 21.11.2024

Erindi dagsett 5. september 2024 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Ingibjargar Baldursdóttur sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir svölum á 1. og 2. hæð húss nr. 7 við Oddagötu. Innkomin gögn eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Eignaskiptayfirlýsing skal liggja fyrir áður en byggingarheimild er gefin út.