Helgamagrastræti 15 - fyrirspurn varðandi skipulagsmál

Málsnúmer 2024080434

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 429. fundur - 28.08.2024

Erindi dagsett 9. ágúst 2024 þar sem að Anna María Hallgrímsdóttir sækir um leyfi til að nýta hluta bílskúrs á lóð Helgamagrastrætis 15 undir snyrtistofu.
Skipulagsráð samþykkir að grenndarkynna áformin skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Hamarstígs 10, 11b og 12, með því skilyrði að fyrir liggi samþykki annarra lóðarhafa Helgamagrastrætis 15.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.