Tilboð - Kauptilboð í byggingarrétt lóðarinnar Hlíðarmói 1-9

Málsnúmer 2024070519

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 429. fundur - 28.08.2024

HeiðGuðByggir ehf. átti hæsta tilboð í lóðina Hlíðarmóa 1-9 og hefur staðfest að félagið vill halda lóðinni. Félagið hefur skilað inn öllum tilskildum gögnum.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.