Raforkukaup

Málsnúmer 2024060693

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3852. fundur - 13.06.2024

Lagt fram til kynningar minnisblað dagsett 5. júní 2024 um kaup á raforku fyrir Akureyrarbæ og Hafnasamlag Norðurlands. Samningur við Fallorku um kaup á raforku rennur út 1. júlí næstkomandi. Farið var í örútboð innan rammasamnings Ríkiskaupa og verður nýr samningur gerður við Straumlind ehf. til þriggja ára með eins árs framlengingarákvæði.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Kristín Baldvinsdóttir forstöðumaður hagþjónustu og áætlanagerðar sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.