Hafnarstræti 80-82 - fyrirspurn um minniháttar breytingu á kjallara

Málsnúmer 2024060633

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 425. fundur - 12.06.2024

Lagt fram erindi THG Arkitekta dagsett 3. júní 2024, f.h. lóðarhafa Hafnarstrætis 80-82, þar sem óskað er eftir heimild til að breyta byggingarreit fyrirhugaðs kjallara á lóðinni.
Að mati skipulagsráðs er um svo óverulegt frávik að ræða með vísun í ákvæði 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að ekki er talin þörf á breytingu á deiliskipulagi.