Asahikawa - ósk um vinabæjasamstarf

Málsnúmer 2024051791

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3852. fundur - 13.06.2024

Lagt fram erindi frá Hirosuke Imazu borgarstjóra japönsku borgarinnar Asahikawa þar sem óskað er eftir umræðu um aukin tengsl og samstarf við Akureyrarbæ.

Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð þakkar auðsýndan áhuga á Akureyrarbæ, en ekki er á döfinni að fjölga vinabæjum að svo stöddu.