Umsókn um lokun á götum - Sumarmót Hvítasunnukirkjunnar 5.- 7. júlí

Málsnúmer 2024051620

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 425. fundur - 12.06.2024

Erindi dagsett 28. maí 2024 þar sem að Hvítasunnukirkjan á Akureyri óskar eftir því að fá að loka Skarðshlíðinni frá horni við Höfðahlíð 2 og út að horni við Skarðshlíð 21.
Skipulagsráð samþykkir að loka götunni á þessum stað til norðurs, sunnudaginn 7. júlí milli 13-15, með þeim skilyrðum að jákvæð umsögn hafi borist frá umhverfis- og mannvirkjasviði og Vegagerðinni, Lögregluembættinu á Norðurlandi eystra, Slökkviliði Akureyrar og felur skipulagsfulltrúa að sjá um gildistökuna.