Samningur um samstarf ríkis og Akureyrarbæjar um menningarmál 2024

Málsnúmer 2024050204

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3848. fundur - 08.05.2024

Samningur um samstarf ríkis og Akureyrarbæjar um menningarmál lagður fram.

Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra að undirrita hann.

Bæjarráð samþykkir að gerður verði viðauki að fjárhæð kr. 20 milljónir vegna málsins og felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að vinna viðaukann.


Hilda Jana Gísladóttir S-lista óskar bókað:

Það er miður að framlag ríkisins og Akureyrarbæjar vegna samnings um menningarmál haldi ekki að lágmarki í við verðlagsþróun, enda ljóst að þar með er um að ræða raunlækkun á framlögunum svo um munar.