Kjarnagata 37-39 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2023010818

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 899. fundur - 19.01.2023

Erindi dagsett 16. janúar 2023 þar sem Bjarni Reykjalín fyrir hönd Gunnars Hauks Jóhannessonar sækir um byggingaráform og byggingarheimild til að endurnýja svalalokunarkerfi á íbúðum 201, 301, 401 og 501. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Bjarna Reykjalín.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.