Lagt fram til kynningar erindi dagsett 16. mars 2021 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna stuðnings til smærri innlendra áfengisframleiðenda og heimildar til sölu áfengis á framleiðslustað (áfengisgjald, sala áfengis á framleiðslustað), 495. mál 2021.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 30. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis:
https://www.althingi.is/altext/151/s/0826.html