Munkaþverárstræti 29 - fyrirspurn til skipulagssviðs vegna bílgeymslu

Málsnúmer 2020090607

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 345. fundur - 14.10.2020

Erindi dagsett 21. september 2020 þar sem Anton Berg Carrasco leggur inn fyrirspurn hvort leyfi fengist fyrir byggingu bílgeymslu á lóð nr. 29 við Munkaþverárstræti.
Skipulagsráð tekur jákvætt í erindið með fyrirvara um útfærslu bílgeymslunnar og athugasemda sem gætu komið við grenndarkynningu.