Hafnarstræti 34 - umsókn um niðurrif

Málsnúmer 2020070526

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 775. fundur - 23.07.2020

Erindi dagsett 15. júlí 2020 þar sem Þorgeir Jónsson fyrir hönd Höfða fasteignafélags ehf., kt. 690104-2020, sækir um leyfi fyrir niðurrifi hússins á lóðinni nr. 34 við Hafnarstræti vegna uppbyggingar á lóðinni í samræmi við deiliskipulag.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið með þeim skilyrðum að öll ummerki byggingarinnar verði fjarlægð. Niðurrifið verður tilkynnt til Þjóðskrár Íslands eftir að úttekt byggingareftirlits hefur farið fram við verklok skv. 16. gr. Mannvirkjalaga.