Norðurgata 3 - ósk um að fallið verði frá byggingarskyldu

Málsnúmer 2020060703

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 339. fundur - 24.06.2020

Lagt fram erindi Íslandsréttar ehf. dagsett 18. júní 2020, f.h. eigenda Norðurgötu 3, þar sem óskað er eftir að Akureyrarbær falli frá byggingarskyldu núverandi eigenda.
Skipulagsráð samþykkir að falla frá byggingarskyldu núverandi eigenda.

Ganga skal frá lóðinni þannig að ekki skapist hætta af því sem á lóðinni er.