Brekatún 2 - umsókn um breytt eignarhald á geymslugangi

Málsnúmer 2018030414

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 679. fundur - 24.05.2018

Erindi dagsett 15. maí 2018 þar sem Fríður Leósdóttir fyrir hönd Brekatúns 2, húsfélags, kt. 680115-0870, sækir um leyfi fyrir breytingum á geymslum í húsi nr. 2 við Brekatún ásamt fjölgun bílastæða á suðurlóð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 683. fundur - 05.07.2018

Erindi dagsett 15. maí 2018 þar sem Fríður Leósdóttir fyrir hönd Brekatúns 2, húsfélags, kt. 680115-0870, sækir um leyfi fyrir breytingum á geymslum íbúða á 5. og 6. hæð í húsi nr. 2 við Brekatún ásamt fjölgun bílastæða á suðurlóð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson. Innkomnar nýjar teikningar 8. júní 2018.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Skila skal inn breyttum eignarskiptasamningi.