Glerárgata 3 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2013090058

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 165. fundur - 09.10.2013

Erindi dagsett 6. september 2013 þar sem Meltuvinnslan ehf., kt. 571297-3029, sækir um lóð nr. 3 við Glerárgötu.

Frestað.

Skipulagsnefnd - 166. fundur - 30.10.2013

Erindi dagsett 6. september 2013 þar sem Meltuvinnslan ehf., kt. 571297-3029, sækir um lóð nr. 3 við Glerárgötu.
Meðfylgjandi er yfirlýsing Landsbankans hf. dagsett 15. október 2013 þar sem fram kemur að byggingarframkvæmdirnar séu til skoðunar hjá bankanum og verður erindið tekið fyrir að nýju í Lánanefnd bankans þegar allar forsendur fyrirhugaðs verkefnis liggja fyrir.
Einnig liggur fyrir samkomulag Fjarðarvers ehf. og Meltuvinnslunnar ehf. um fjármögnun og uppbyggingu verkefnisins í heild.

Skipulagsnefnd getur ekki tekið afstöðu til umsóknarinnar þar sem ekki liggur fyrir staðfest yfirlýsing frá banka varðandi fjármögnun á byggingarframkvæmdum og frestar því erindinu.