Fræðsluráð

20. fundur 20. nóvember 2017 kl. 13:30 - 16:00 Naustaskóli
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Dagný Þóra Baldursdóttir
  • Siguróli Magni Sigurðsson
  • Anna Rósa Magnúsdóttir
  • Brynhildur Pétursdóttir
  • Inga Elísabet Vésteinsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
Fundargerð ritaði: Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Anna Rósa Magnúsdóttir D-lista sat fundinn í forföllum Baldvins Valdemarssonar.
Inga Elísabet Vésteinsdóttir V-lista sat fundinn í forföllum Önnu Maríu Hjálmarsdóttur.
Elías Gunnar Þorbjörnsson fulltrúi grunnskólastjórnenda boðaði forföll.
Vilborg Hreinsdóttir fulltrúi leikskólakennara boðaði forföll.

1.Zankov stærðfræði - þróunarverkefni

Málsnúmer 2017110177Vakta málsnúmer

Þóra Rósa Geirsdóttir sérfræðingur á miðstöð skólaþróunar HA kom á fundinn og kynnti Zankov stærðfræðina og sagði frá stærðfræðikönnun sem hún hyggst gera í 1.- 3. bekkjum tveggja skóla á Akureyri.
Fræðsluráð þakkar Þóru Rósu áhugaverða kynningu.

2.Hljóðvist í leikskólum - tilraunaverkefni

Málsnúmer 2015040233Vakta málsnúmer

Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi kynnti helstu niðurstöður í tilraunaverkefni um hljóðvist í leikskólum.

3.Samstarfsnefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara - lokaskýrsla

Málsnúmer 2017110092Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt samstarfsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara á niðurstöðum í lokaskýrslum sveitarfélaga og umbótaáætlunum grunnskóla vegna úrvinnslu bókunar I með kjarasamningi aðila.

4.Frístundaráð - stefnumótun - íþróttastefna 2017

Málsnúmer 2017020033Vakta málsnúmer

Frístundaráð Akureyrarbæjar óskar eftir umsögn hagsmunaaðila á drögum að nýrri íþróttastefnu Akureyrarbæjar og ÍBA.

Rætt.

5.Gjaldskrár fræðslusviðs 2018

Málsnúmer 2017090102Vakta málsnúmer

Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar fór yfir fyrirhugaðar breytingar á gjaldskrá vegna systkinaafsláttar.
Fræðsluráð samþykkir að leggja til að systkinaafsláttur í leik- og grunnskólum og hjá dagforeldrum verði hækkaður úr 30% í 50% af dvalargjaldi með öðru barni frá næstu áramótum.

Kostnaður vegna umræddra breytinga er áætlaður 16,5 milljónir króna vegna ársins 2018.

Fræðsluráð vísar tillögunni til afgreiðslu í bæjarráði.



Fundi slitið - kl. 16:00.