Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

995. fundur 28. nóvember 2024 kl. 13:00 - 13:40 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Gránufélagsgata 22 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 1

Málsnúmer 2024100696Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. október 2024 þar sem Kári Magnússon fh. Stefáns Ármanns Hjaltasonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir nýbyggingu íbúðarhúss og endurbyggingu á núverandi húsi á lóð nr. 22 við Gránufélagsgötu. Innkomin ný gögn dagsett 20. nóvember 2024 eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Gleráreyrar 1, rými 15, Skor - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 1

Málsnúmer 2024061639Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. júní 2024 þar sem Svava Björk Bragadóttir fh. Eikar fasteignafélags hf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss á rými 15 í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Innkomin ný gögn dagsett 22. nóvember 2024 eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Helgamagrastræti 15 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 1

Málsnúmer 2024111234Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. nóvember 2024 þar sem Þórir Guðmundsson fh. Önnu Maríu Hallgrímsdóttur sækir um að breyta bílgeymslu á lóð nr. 15 við Helgamagrastræti í snyrtistofu og geymslu. Innkomin gögn eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 13:40.