Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

992. fundur 08. nóvember 2024 kl. 10:00 - 10:20 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Munkaþverárstræti 30 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021062001Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. júní 2021 þar sem Árni Gunnar Kristjánsson fyrir hönd Grjótagötu ehf., sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum utanhúss á húsi nr. 30 við Munkaþverárstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Árna Gunnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Hlíðarfjall - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2024110250Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. nóvember 2024 þar sem Brynjar Helgi Ásgeirsson f.h. Hlíðarfjalls sækir um stöðuleyfi fyrir gám undir sprengiefni.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til eins árs.

3.Hlíðarfjall - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2024110252Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. nóvember 2024 þar sem Brynjar Helgi Ásgeirsson f.h. Hlíðarfjalls sækir um stöðuleyfi fyrir gám við Fjallkonu undir hluti úr lyftunni.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til eins árs.

4.Gleráreyrar 1, rými 94 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2024110149Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. nóvember 2024 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags ehf., sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innandyra og á útliti húss nr. 1 við Gleráreyrar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 10:20.