Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

991. fundur 31. október 2024 kl. 13:00 - 13:15 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Mýrarvegur - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 1

Málsnúmer 2024100882Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. október 2024 þar sem Jón Hrafn Hlöðversson fh. Orkunnar ehf. sækir um að bæta við dælum nr. 3 og 4 fyrir bensín og olíu á sjálfsafgreiðslustöð Orkunnar við Mýrarveg. Innkomin gögn eftir Jón Hrafn Hlöðversson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Krossanes 4 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024050158Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. maí 2024 þar sem Anton Örn Brynjarsson fyrir hönd Krossaness eigna ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir lagfæringum innanhúss eftir eldsvoða í húsi nr. 4 við Krossanes. Innkomin gögn eftir Anton Örn Brynjarsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:15.