Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

985. fundur 18. september 2024 kl. 13:00 - 13:15 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
  • Hjálmar Andrés Jónsson verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Glerárgata 26 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2024090772Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 13. september 2024 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Reykja fasteignafélags ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss á húsi nr. 26 við Glerárgötu. Innkomin gögn eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Tryggvabraut 10 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2023091211Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. september 2023 þar sem Ragnar Freyr Guðmundsson f.h. Hölds - Fasteignafélags ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss á húsi nr. 10 við Tryggvabraut. Meðfylgjandi eru teikningar dagsettar 16. september 2024 eftir Ragnar Frey Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Kambagerði 5 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2024090971Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. september 2024 þar sem Bergur Steingrímsson sækir um stækkun á bílastæði og úrtak í kantstein við hús nr. 5 við Kambagerði.
Byggingarfulltrúi samþykkir stækkun á bílastæði með 7 metra úrtaki í kantstein með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf. Í vinnureglunum er kveðið á um heimild umhverfis- og mannvirkjasviðs til gjaldtöku vegna vinnu við úrtakið.

Fundi slitið - kl. 13:15.