Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

982. fundur 29. ágúst 2024 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála ritaði fundargerð
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
Fundargerð ritaði: Rebekka Rut Þórhallsdóttir fulltrúi skipulags- og byggingarmála
Dagskrá

1.Lyngmói 1-3-5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2024061732Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. júní 2024 þar sem Haraldur S. Árnason f.h. Trétaks ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 1 við Lyngmóa. Innkomin ný gögn 28. ágúst 2024 eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Tryggvabraut 8 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild - umfangsflokkur 1

Málsnúmer 2024081746Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. ágúst 2024 þar sem Guðmundur Oddur Víðisson f.h. Yrkis eigna ehf. sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir breytingum innanhúss á húsi nr. 8 við Tryggvabraut. Innkomin gögn eftir Guðmund Odd Víðisson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Hulduholt 14-16 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2023061778Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. ágúst 2024 þar sem Yngvi Ragnar Kristjánsson fyrir hönd Kötlu ehf. sækir um breytingar á áðum samþykktum teikningum af parhúsi á lóð nr. 14-16 við Hulduholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Yngva Ragnar Kristjánsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Þingvallastræti 50 - umsókn um stöðuleyfi

Málsnúmer 2024021315Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 23. febrúar 2024 þar sem Zipline Akureyri ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir gáma í stað húss nr. 50 við Þingvallastræti.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til eins árs.

Fundi slitið - kl. 13:30.