Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

976. fundur 17. júlí 2024 kl. 13:00 - 13:30 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ólafur Elvar Júlíusson verkefnastjóri byggingarmála
  • Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
  • Hjálmar Árnason eftirlitsmaður
Fundargerð ritaði: Katrín Rós Ívarsdóttir verkefnastjóri fasteignaskráningar
Dagskrá

1.Dvergaholt 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Umfangsflokkur 2

Málsnúmer 2024070902Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. júlí 2024, þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Brynju leigufélags ses., sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 1 við Dvergaholt. Innkomin gögn eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Kjarnagata 35 - umsókn um byggingaráform og byggingarheimild

Málsnúmer 2024041343Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 26. apríl 2024 þar sem Björn Vigfússon sækir um byggingaráform og byggingarheimild fyrir svalalokun á fjölbýlishúsi nr. 35 við Kjarnagötu. Innkomin ný gögn dags. 12. júlí 2024.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:30.