Útboð á framkvæmdum við nýbyggingu vélageymslu í Hlíðarfjalli

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í nýja vélageymslu í Hlíðarfjalli. Um er að ræða fullbúið og uppsett stálgrindarhús með klæðningu, hurðum og gluggum ásamt uppsettum hlaupaketti. Sökklar og undirstöður eru ekki hluti þessa útboðs. Verklok eru 1. nóvember 2023.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með þriðjudeginum 28. febrúar 2023.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins, ekki er hægt að notast við Íslykil.

Kynningarfundur verður föstudaginn 3. mars kl. 11.00 í fundarsal umhverfis- og mannvirkjasviðs. Í framhaldinu gefst væntanlegum bjóðendum kostur á því að skoða aðstæður á verkstað.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en þann 23. mars 2023 kl. 11:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.