Útboð á framkvæmdum við nýbyggingu og endurnýjun íbúða við Hafnarstræti 16

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í nýbyggingu og fullnaðar frágang tveggja íbúða og endurbyggingu tveggja samliggjandi húsa við Hafnarstræti 16 á Akureyri. Um er að ræða 6 íbúða kjarna ásamt tengibyggingu. Verklok eru 30. september 2024

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með miðvikudeginum 1. mars 2023.

Kynningarfundur og vettvangsskoðun verður þriðjudaginn 7. mars kl. 13.00 í fundarsal umhverfis- og mannvirkjasviðs. Í framhaldinu gefst væntanlegum bjóðendum kostur á því að skoða aðstæður á verkstað.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en þann 27. mars 2023 kl. 14:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.