Heimsókn frá franska sendiráðinu.
Í lok hvers bæjarstjórnarfundar fer bæjarstjóri yfir helstu verkefni hverju sinni.
Efni skýrslunnar getur tekið breytingum í flutningi.
Flutt á fundi bæjarstjórnar 4. júní 2019.
23. apríl: Átti fund með Svavari Pálssyni sýslumanni á norðurlandi eystra.
29. apríl: Átti góðan fund með fulltrúum Þingeyjarsveitar ásamt bæjarfulltrúunum Guðmundi Baldvin Guðmundssyni og Andra Teitssyni.
7.-9. maí: Arctic Mayors fundur í Rovaniemi í Finnlandi. Næsti fundur Arctic Mayors verður í október í Hofi á Akureyri.
10. maí: Fundur með Jóni Helga Björnssyni framkvæmdastjóra HSN.
13. maí: Tók á móti Gerard Pokruszynski sendiherra Pólverja á Íslandi og með honum í för var Anna Maria Rudnicka-Ostrowska en hún kennir Pólverjum á Akureyri íslensku.
13. maí: Tók á móti Oscar Avila frá Sendiráði Bandaríkjanna og var umræðuefnið fræðslumál.
14. maí: Heimsókn frá drengjum á leikskólanum Kiðagili.
15. maí: Sat fund á Hótel Kea um samráð og samtal um drög að kerfisáætlun Landsnets 2019-2028.
16. maí: Átti fund með Bjarna Jónssyni framkvæmdastjóra SAk.
16. maí: Tók á móti Paul Gramham sendiherra Frakka á Íslandi og með honum í för var Jean-Marc Bordier skipherra frönsku freigátunnar Aquitaine sem lá við bryggju á Akureyri.
18. maí: Opnaði formlega samsýninguna Vor í Listasafninu á Akureyri, þar sem norðlenskir listamenn sýna verk sín.
20. maí: Fundur með Þorkeli Sigurlaugssyni um Framtakssjóðinn.
21. maí: Vinnufundur með sviðsstjórum Akureyrarbæjar þar sem unnið var með hugmyndafræði Design thinking, þar sem þjónustuþeginn er í fyrirrúmi við alla ákvarðanatöku.
22. maí: Hitti hóp frábærra kvenna sem komu alla leið frá Denver systursveitarfélagi okkar hér á Akureyri.
.
22. maí: Átti símafund með Kristínu Sigurðardóttir framkvæmdastjóra Bifreiðasjóðs Reykjavíkurborgar.
24. maí: Fundur með Baldri Þóri Guðmundssyni frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem til umræðu voru skylduskil Amtsbókasafnsins. Fundinn sátu líka Hilda Jana Gísladóttir bæjarfulltrúi og Hólmkell Hreinsson amtsbókavörður.
24. maí: Opnaði formlega Handverkssýningu eldri borgara í Víðilundi og fékk leiðsögn um sýninguna frá Bergljótu Jónsdóttur forstöðumanni. Frábær sýning.
25. maí: Setti formlega í Hofi 100 ára afmælismót Skákfélags Akureyrar sem einnig var alþjóðlegt skákmót. Lék þar fyrsta leikinn fyrir Ivan Sokolov sem tefldi fyrir Holland í viðureign hans við Geoffrey Ruelland frá Kanada.
27. maí: Mætti í Flugsafnið til að taka á móti fyrstu farþegum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel.
27. maí: Heimsótti Iðnaðarsafnið.
27. maí: Var viðstödd þegar fræðsluráð Akureyrarbæjar veitti viðurkenningar til nemenda og starfsfólks leik- og grunnskóla. Mjög áhugavert og til hamingju allir sem fengu viðurkenningu.
30. maí: Flutti ávarp í Hofi á afmælishátíð lífeyrissjóðanna.
4. júní: Tók á móti góðum gestum frá Randers, vinabæ okkar í Danmörku. Þau komu á skrifstofu bæjarstjóra þar sem undirrituð og Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs fóru yfir það hvernig stjórnsýslunni er háttað hjá Akureyrarbæ.