Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í útvegun og fullnaðarfrágang gervigrass ásamt fjaðurlagi vegna nýs gervigrasvallar á æfingasvæði Þórs við Skarðshlíð Akureyri.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með miðvikudeginum 13. nóvember 2024.
Gögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugátt Akureyrarbæjar eftir að búið er að sækja um þau og eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.
Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en 11. desember 2024 kl. 11:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.