Information in English
Informacje po polsku
Akureyringar eru og hafa um árabil verið framarlega þegar kemur að flokkun úrgangs en við getum með auðveldum hætti gert betur.
Sumarið 2024 innleiðum við næstu skref í flokkun úrgangs líkt og kveðið er á um í lögum varðandi meðhöndlun úrgangs sem tóku gildi 1. janúar 2023. Lagabreytingarnar fela m.a. í sér að nú skal safna fjórum flokkum úrgangs við hvert heimili. Flokkarnir fjórir eru þessir:
Öllum tunnum verður skipt út sumarið 2024. Verkið hefst í lok júní og verður lokið í haust. Tunnuskiptin fara fram samhliða sorphirðu. Byrjað verður nyrst í bænum og hvert hverfi tekið fyrir sig til suðurs. Leitast verður við að íbúar finni sem minnst fyrir breytingunum og sett í algjöran forgang að röskun á daglegum venjum þeirra verði óveruleg.
Gefið verður út sérstakt hirðudagatal og birt hér á heimasíðunni. Einnig verður hægt að sjá í Akureyrarappinu hvenær ílátin verða tæmd. Almenna reglan er þessi:
- Ílát með matarleifum og blönduðum úrgangi verða áfram losuð á 14 daga fresti
- Ílát undir pappír, pappa og plast verða losuð á 28 daga fresti
Mikilvægur þáttur í bættri flokkun er að draga sem allra mest úr urðun úrgangs en því miður verður blandaður úrgangur áfram urðaður. Með þetta í huga er mikilvægt að flokka matarleifar, pappír og plast í rétt ílát og ekki síður að fara með allan tilfallandi umframúrgang í grenndargáma og á gámasvæði og flokka þar í rétt ílát. Sé þetta vel gert mun það draga úr magni blandaðs úrgangs og þannig draga úr urðun. Við getum þetta saman!
Hér má nálgast upplýsingar um hvernig þetta verður við þitt heimili:
Hvernig verður þetta við sérbýli?
Hvað breytist við fjölbýlishús?
Geta fleiri en eitt hús verið saman með ílát?
Fleiri spurningar um breytingarnar