Lýðheilsukort

Akureyrarbær býður íbúum með lögheimili í sveitarfélaginu sérstakt Lýðheilsukort gegn bindingu í eitt ár. Um er að ræða tilraunaverkefni sem veitir handhöfum kortsins árskort að Sundlaugum Akureyrar, Hlíðarfjalli og Skautahöllinni á Akureyri.

Kortin verða til sölu frá 10. nóvember 2022 til 1. maí 2025 og gilda í eitt ár frá kaupdegi. Að sölutímabili loknu verður árangur af tilraunaverkefninu metinn og tekin ákvörðun um hvort halda skuli áfram á sömu braut.

Vakin er athygli á því að þeir sem vilja endurnýja Lýðheilsukortið þurfa að sækja aftur um Lýðheilsukortið í þjónustugátt Akureyrarbæjar þar sem gildistími Lýðheilsukortsins rennur sjálfkrafa út eftir eitt ár. Þeir sem eru að endurnýja Lýðheilsukortið þurfa líkt og áður að mæta í Sundlaug Akureyrar til að láta virkja áskriftina á kortin eftir að búið er að sækja um í þjónustugátt Akureyrarbæjar. Nauðsynlegt er að mæta með öll kortin (skidata-kortin) í Sundlaug Akureyrar sem fylgja áskriftinni þegar þau eru virkjuð.  

Reglur um lýðheilsukort

Lýðheilsukort veitir íbúum með lögheimili í sveitarfélagi Akureyrarbæjar árskort að:
- Sundlaugum Akureyrarbæjar (Sundlaug Akureyrar, Glerárlaug, Hrísey og Grímsey),
- Hlíðarfjalli (sumar- og vetraropnun) og
- Skautahöllinni á Akureyri (skautaleiga innifalin).

Kortið verður í boði fyrir íbúa með lögheimili í sveitarfélagi Akureyrarbæjar. Kortin verða í sölu frá 10. nóvember 2022 til 1. maí 2025 og gilda í eitt ár frá kaupdegi. Miðað er við aldur barns á kaupdegi og kortið heldur gildistíma sínum þó að viðkomandi verði 18 ára á tímabilinu.

Binditími lýðheilsukorta er eitt ár.

Eftirfarandi útgáfur af lýðheilsukortinu eru í boði fyrir íbúa Akureyrarbæjar:

  • Lýðheilsukort fyrir tvo einstaklinga (18 ára og eldri) sem búa á sama lögheimili eða tvo foreldra sem búa á sama lögheimili með barn/börn (17 ára og yngri).
  • Lýðheilsukort fyrir einstakling (18 ára og eldri) eða eitt foreldri og barn/börn (17 ára og yngri).
  • Lýðheilsukort fyrir öryrkja og barn/börn (17 ára og yngri).
  • Lýðheilsukort eldri borgara

Sjá einnig Lýðheilsukort - skilmálar.

Umsókn um lýðheilsukort

Sótt er um lýðheilsukortið á sérstöku umsóknareyðublaði í þjónustugátt Akureyrarbæjar.  

  • Umsóknareyðublað fyrir tvo einstaklinga (18 ára og eldri) sem búa á sama lögheimili eða tvo foreldra sem búa á sama lögheimili og barn/börn (17 ára og yngri) má finna  HÉR
  • Umsóknareyðublað fyrir einstakling (18 ár og eldri) eða eitt foreldri og barn/börn (17 ára og yngri) má finna  HÉR
  • Umsóknareyðublað fyrir öryrkja og barn/börn (17 ára og yngri)  má finna HÉR
  • Umsóknareyðublað fyrir eldri borgara má finna HÉR

Þegar búið er að sækja um lýðheilsukortið í þjónustugátt Akureyrarbæjar er hægt að sækja það í afgreiðslu Sundlaugar Akureyrar. Afhending og virkjun lýðheilsukorta fer alfarið fram í afgreiðslu Sundlaugar Akureyrar.

Athugið að til að fá útgefið kort (skidata-kort, sjá verðskrá) þarf einstaklingur/fjölskylda að mæta í afgreiðslu Sundlaugar Akureyrar þar sem taka þarf ljósmynd á staðnum af handhafa hvers korts. Ef allir fjölskyldumeðlimir geta ekki komið saman þegar kortin eru virkjuð og sótt verður umsækjandi að mæta með útprentaða mynd eða mynd í síma af þeim fjölskyldumeðlim sem mætir ekki, nema ef viðkomandi hefur áður átt árskort í Sundlaugar Akureyrar eða Hlíðarfjalli.

Ekki er hægt að sækja um né kaupa lýðheilsukortið í Sundlaug Akureyrar og fer umsóknin og val um greiðsluleið alfarið í gegnum þjónustugátt Akureyrarbæjar.

Þau sem ekki hafa rafræn skilríki eða geta af öðrum ástæðum ekki sótt um Lýðheilsukort í gegnum Þjónustugáttina geta sótt um í Þjónustuveri bæjarins í Ráðhúsinu, Geislagötu 9 frá kl. 9-15 virka daga. Mikilvægt er að umsækjendur hafi meðferðis persónuskilríki.

Markmið lýðheilsukorta

Meginmarkmið með útgáfu kortanna er að bæta lýðheilsu í heilsueflandi samfélagi með áherslu á aukna samveru foreldra, barna og ungmenna undir 18 ára aldri, auk eldri borgara.

Gildistími lýðheilsukorta

Kortin verða í sölu frá 10. nóvember 2022 til 1. maí 2025 og gilda í eitt ár frá kaupdegi. 
Miðað er við aldur barns á kaupdegi og kortið heldur gildistíma sínum þó að viðkomandi verði 18 ára á tímabilinu.

Ekki er þörf á að segja upp lýðheilsukortinu þar sem gildistími þess rennur út eftir eitt ár.

Verðskrá lýðheilsukorta

Fyrir lýðheilsukortið er greitt eitt mánaðargjald með 12 mánaða binditíma og um fjögur mismunandi lýðheilsutilboð er að ræða:

1) Tveir einstaklingar (18 ára og eldri) eða tveir foreldrar og barn/börn (17 ára og yngri), gjaldið er 8.613 kr. á mánuði í 12 mánuði, samtals 103.350 kr. á fjölskyldu á ári.

2) Einstaklingur (18 ára og eldri) eða eitt foreldri og barn/börn (17 ára og yngri), gjaldið er 5.342 kr. á mánuði í 12 mánuði, samtals 64.100 kr. á fjölskyldu á ári.

3) Öryrki og barn/börn (17 ára og yngri), gjaldið er 2.183 kr. á mánuði í 12 mánuði, samtals 26.200 kr. á fjölskyldu á ári*

4) Eldri borgari (67 ára og eldri), gjaldið er 2.183 kr. á mánuði í 12 mánuði, samtals 26.200 kr. á einstakling á ári.

*Vakin er athygli á því að það er frítt í sundlaugar Akureyrarbæjar og Skautahöllina á Akureyri fyrir öryrkja.

Vakin er athygli á því að ef viðkomandi á ekki nú þegar skidata-kort þá þarf að kaupa það sérstaklega. Skidata-kort kostar 1.200 kr. á hvern einstakling.

Umsækjandi getur valið á milli tveggja greiðsluleiða:

1) Mánaðarleg krafa myndast í heimabanka næstu 12 mánuði.

2) Ein krafa myndast í heimabanka fyrir allri upphæðinni.

Leiðbeiningar hvernig sækja má kvittun fyrir Lýðheilsukortinu má finna hér 

Fólk er hvatt til að kynna sér gjaldskrár Sundlaugar Akureyrarbæjar, Hlíðarfjalls og Skautahallarinnar á Akureyri til að gera verðsamanburð.
- Gjaldskrá Sundlaugar Akureyrarbæjar má finna hér 
- Gjalskrá Hlíðarfjalls má finna hér 
- Gjaldskrá Skautahallarinnar á Akureyri má finna hér

Síðast uppfært 10. desember 2024